Lára bloggar

Hitt og þetta

15.12.2008 21:19:21 / larasigridur

JÓLAFRÍ!!!!!

Kláraði þá loksins prófin á síðasta föstudag. Úff hvað það var ljúf tilfinning. Þá er bara að bíða eftir einkunnunum en þær byrja að detta inn í lok þessarar viku.
Ég hef lengi stefnt að ein aldrei látið verða af því að ganga á Esjuna. Við Jón Ingi gáfum hvort öðru snemmbúna jólagjöf um daginn. Við semsagt keyptum okkur gönguskó. Á laugardaginn lét ég svo loksins verða að því og dreif mig af stað. Það var glampandi sól og heiðskýrt, snjór yfir öllu og frekar kalt. Ferðin upp og niður tók tæpa 4 tíma og ég naut hverrar mínútu í botn. Þetta var geggjað. Nú er bara að drífa sig aftur upp sem fyrst. En ekki áður en ég er búin að fá mér gorma eða brodda undir skóna. Datt aðeins of oft á leiðinni niður.
Myndir koma við tækifæri.






» 1 hafa sagt sína skoðun

01.12.2008 13:28:43 / larasigridur

Próf!!!!!!

Er skriðin undir feld að lesa fyrir próf.



Mun láta í mér heyra eftir 12. des.

Gangi mér vel:)



» 1 hafa sagt sína skoðun

27.11.2008 15:52:54 / larasigridur

Eldur eldur!!!!! Allir að vera vinir:)

Var í ræktinni í gærmorgun þegar allt í einu brunabjöllurnar fóru í gang. Það spáði enginn neitt í neinu og fólk hélt bara áfram að rembast við að lyfta lóðum og hamast á brettunum. Það kom síðan í ljós stuttu seinna að það hafði kviknað í rafmagnstöflu, ekki bara einhver smá neisti heldur alveg heljar bál. Nú rafmagnið fór auðvitað af. Þannig það myndaðist þessi svaka fína kósý stemming. Græn birtan af neyðarljósunum og kertaljós hér og þar. Það kárnaði heldur gamanið þegar það átti svo að fara að koma sér í vinnuna. Skáparnir eru auðvitað læstir með lásum sem ganga fyrir rafmagni hehe. Sem betur fer hafði stöðin keypt eitthvað tölvudót og fengið það sent til landsins í síðustu viku. Með þessu apparati var svo hægt að tengja framhjá og opna skápana. Tók samt alveg svolítinn tíma.
Það er svo magnað hvað það skapast mikil samkennd og allir verða eitthvað svo miklir vinir þegar eitthvað svona kemur upp á. Allir að spjalla voða mikið. Fólk sem varla lítur á hvort annað undir venjulegum kringumstæðum finnur allt í einu að það á eitthvað sameiginlegt og sér sig knúið til að brydda upp á samræðum. 

                                         

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.11.2008 13:13:58 / larasigridur

Spurning um að flytja í öruggara hverfi??

Vaknaði klukkan 3 í nótt og sé að minn heitt elskaði liggur hálfur út um svefnherbergisgluggann að fylgjast með einhverju úti á bílastæði. Ég spyr hann hvað gangi eiginlega á því ég heyrði öskur og læti. Hann segir það eru einhverjir gaurar þarna með sleggjur og kylfur. Ég bara WHAT!!! og hendist fram úr. Enda alveg ein sú forvitnasta í bransanum. Nú það er ekkert með það að það upphefjast einhver slagsmál sem færast fjær og að lokum rétt úr augnsýn. Sjáum þó glitta aðeins í einhverja. Vorum bókstaflega límd á rúðuna hehe. Allavega síðan eru það bara blá ljós og einn af árásarmönnunum kemur hlaupandi upp að húsinu sem ég bý í. Stoppar aðeins við bíl sem nokkrir af villimönnunum komu á og höfðu skilið eftir.  Inni í bílnum var stelpu skjáta og hundspott og stelpan vildi auðvitað ekki opna fyrir gaurnum þannig hann gerir sér lítið fyrir og mölvar rúðuna í bílnum. Stingur svo af. Stuttu seinna er allt stútfullt af löggum og ég heyri í talstöðinni hjá einni að það er verið að kalla eftir sjúkrabíl því maður hafi verið laminn í höfuðið með sleggju. Ég gafst síðan upp á að reyna að fylgja þessum hasar eftir og skreið aftur undir hlýja sængina. Heyrði stuttu seinna að einhver kom að ná í hundinn og að lokum voru það lætin í dráttarbílnum sem leiddu mig inn í draumalandið.
                                                                                                     

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.11.2008 18:22:59 / larasigridur

Hetjur hafsins

Að sjálfsögðu fór ég í sjósundið í dag. Jón Ingi er alveg þvílíka hetjan syndir svaka vegalengdir eins og ekkert sé. Ég er svona enn að venja mig við. Er stutt í einu en fór þrisvar sinnum ofaní í dag. Það var svolítið hvasst þannig það var sopinn smá sjór hehe.


Er að svona að átta mig á því að það eru tvær vikur í lokapróf8| Ég ætla svoleiðis að massa þetta. Er í fríi frá vinnu allan desember þannig það ætti ekki að vefjast mikið fyrir mér. Er samt alveg svona nett kvíðin sérstaklega fyrir Gerð og greiningu ársreikninga er bara alls ekki nógu sleip í því.




» 0 hafa sagt sína skoðun

13.11.2008 09:43:44 / larasigridur

Sjósund

Já takk fyrir mig ég skellti mér í sjósund í gær. Er búin að vera svona nokkrar vikur að mana mig upp í að fara. Jón Ingi er búin að vera að mæta niður í Nauthólsvík núna í nokkrar vikur en það tók mig tíma að koma mér af stað. Sjórinn var 5°c HEITUR hehe. Það þurfti viljastyrk til að fara ofan í en ofan í fór ég. Þetta var ekki alveg eins slæmt og ég hélt þó ótrúlegt sé. Það erfiðasta var eiginlega að fara í pottinn á eftir. Ég fékk svo mikið naglakul á puttunum og tásunum að ég var að deyja. Það jafnaði sig reyndar mjög fljótt. Eftir á leið mér síðan alveg þvílíkt vel. Líkaminn í sjokki og ég stolt af þessari þrekraun hehe:) Þetta er alveg geggjuð upplifun og það á hreinu að ég mæti aftur næsta miðvikudag.

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.10.2008 13:07:04 / larasigridur

Fallega veðrið í dag

Manni langar nú bara mest til að skríða undir sæng þegar það blæs svona harkalega. Hugsa að það sé einmitt það sem ég ætla að gera þegar ég er búin að vinna. Allavega þar til ég fer í ræktina. Það er víst ekki nein afsökun að mæta ekki þó svo það sé stormur úti.

Það eru ekki nema 79 dagar til jóla fyrir þá sem vilja vita það. Ég hafði nú planað að vera í fríi allan desember en það er útlit fyrir að það plan standist ekki. Kemur samt allt betur í ljós síðar.

En ætli það sé ekki best að hætta þessu tuði.
 

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.10.2008 19:26:27 / larasigridur

Fló á skinni

Fór í Borgarleikhúsið að sjá Fló á skinni í gærkvöldi. Þetta var með fyndnari sýningum sem ég hef séð og hef ég nú séð þær nokkrar. Mæli með því að þið náið ykkur í miða sem allra fyrst. Ég lá í krampa næstum alla sýninguna:lol:
Kíktum fyrst á Argentínu, mmmmmmm það klikkaði auðvitað ekki já og ekki sakar leikhústilboðið sem þeir eru alltaf með um helgar (tveir fyrir einn).;)

(Þetta blogg var styrkt af Borgarleikhúsinu og Argentínu)

                                       


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.09.2008 19:59:50 / larasigridur

GARS garghhh

Úff sit hérna sveitt að gera sjóðssstreymisverkefni sem ég á að skila á miðnætti. Varð bara að taka smá pásu. Þetta er ekki alveg það skemmtilegasta sem ég geri, en ég verð engu að síður að massa þetta.

Fór á æfingu í dag, 6  skiptið í þessari viku. Byrjaði á að fara út og labbaði rösklega í 30 mín, lyfti síðan vel, hjólaði 5 km, teygði mig og beygði og skellti mér síðan í pottinn. Svona dæmi tekur bara næstum 3 tíma alveg ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Skelltum okkur síðan ég, Jón Ingi og Krissi á GK kjúkling og tróðum í okkur kjúlla þar sem maður var orðinn ansi svangur eftir átökin.

Við hjónin kærustuparið (svona til að rugla ekki fólk) kíktum í smá partý í gærkvöldi stoppuðum reyndar bara mjög stutt þar sem stefnan var sett á æfingu morguninn eftir. Fórum bara og náðum í mynd á leiguna og kúrðum í sófanum. Erum orðin  svo róleg svona í ellinni hehe:)

En jæja verkefnið bíður....


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.09.2008 11:46:24 / larasigridur

Uuuu já ég held það alveg örugglega

Hverskonar svar er það nú eiginlega???? Þessi kennari sem er að þykjast kenna dæma tíma í gerð og greiningu ársreikninga er bara alveg úti á túni. Svörin sem koma frá henni eru öll á sömu leið. Uuuu já ég held það alveg örugglega, spurðu bara Jón hann kann að útskýra þetta svo vel, eða ég er ekki alveg viss spurðu Jón, Jón ætti að hafa útskýrt þetta í tímanum. Come on þetta er bara út í hött ég er ekkert smá pirruð..................

En það er afmælispartý í kvöld Kristínu skvísí pæ. Ég læt mig að sjálfsögðu ekki vanta:)

Later.... ætla að halda áfram að fylgjast með þessari gellu sem veit ekki neitt.


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.09.2008 17:10:06 / larasigridur

Já sæll.....

Í dag hefur gengi krónunnar lækkað um 2,48%. Gengisvísitalan var við upphaf viðskipta 171,70 stig en lokagildi hennar er 175,95 stig og hefur aldrei verið jafn hátt. Innan dagsins fór gengisvísitalan í 178,45 stig. Það sem af er ári nemur veiking krónunnar hátt í 50%

Hvað er að gerast og hvar endar þetta????? Díses maður svitnar bara.

Ójæja ætli ég verði ekki bara bíða eins og allir hinir og sjá hvar við endum.

Fer víst ekki vestur um helgina. Jón Ingi er að skipta um vaktir þannig hann þarf að vinna:( en svona er lífið stundum. Reyndar æðislegt að hann sé að fá að færa sig yfir á hina vikuna.

Skellti mér í luch í dag með Mæju syss og litla kút. Allamalla hann er auðvitað alveg fallegastur þetta barn. Skil bara ekki hvernig þetta er hægt hehe.











» 0 hafa sagt sína skoðun

16.09.2008 10:03:12 / larasigridur

Morgunstund......

Æ hvað það er ljúft að byrja daginn á að því að fara í ræktina. En úff hvað það getur stundum verið erfitt að vakna, ekkert mál þegar maður loksins drattast fram úr en bara það litla atriði getur tekið á.

Þurfti að fara til Dalvíkur um helgina vegna vinnu. Alltaf jafn ljúft að komast aðeins út úr bænum. Skellti mér meira að segja í réttir. Fyrsta skiptið sem ég geri það.

Við skötuhjú ætlum svo að skella okkur vestur á firði á næstu helgi. Mamma og pabbi eru að fara að setja upp bústaðinn og svo eru amma og afi auðvitað í sínum bústað. María og Haraldur ætla að koma með okkur þannig það verður án efa mikið fjör.

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.09.2008 22:41:13 / larasigridur

Skotland - Ísland

Jæja ég á þó von á glöðum Skotum hingað á gistiheimilið til mín í kvöld. Veit ekki hvort það hefði verið mjög gaman að taka á móti þeim ef þeir hefðu tapað hehe.

Einn þeirra gat ekki opnað herbergið sitt áðan þannig ég þaut af stað með honum til að opna. Hann stökk á undan mér upp stigann (í pilsinu auðvitað) ég þorði ekki öðru en að loka augunum af ótta við hvað myndi blasa við mér í bröttum stiganum.

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.04.2008 20:38:35 / larasigridur

Hehehe

Að vera góður bloggari getur verið mjög vandasamt verk og að sumum mætti finnast ógerlegt. Allavega virðist það ekki vera ein af náðargáfunum sem mér voru gefnar. En það er allt í lagi ég er svo flink í mörgu öðru:) Svo nennir maður líka aldrei að blogga þegar enginn commentar, en á móti kemur að fólk nennir ekki að commenta hjá þeim sem ekki blogga. En allavega ég er að spá í að halda áfram að henda inn línu svona af og til þegar ég nenni (hmm semsagt svona 4 sinnum á ári). Þó svo það sé ekki nema bara fyrir sjálfa mig. Svo gott að gera stundum eitthvað fyrir mann sjálfan...............later.........

» 3 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 15:14:30 / larasigridur

Eitt stykki blogg takk

Ég er að fara til þýskalands núna 22. okt:) Þetta er ferð með vinnunni og það verður örugglega hörkufjör. Hérna eru linkar á hótelin sem ég verð á www.burghotel-schoenburg.de og www.rosenpark.com.

Nú síðan ætlum ég og minn heittelskaði að skella okkur til Orlando í desember með von um að sjá kannski sólina glenna sig aðeins þar. Það er nú ekki eins og hún sé eitthvað að monta sig hérna á Íslandi þessa dagana.

Loksins loksins segja kannski sumir en ég ætla að fara og heimsækja hana Maríu systir mína helgina 9.-11. nóv. Hlakka ekkert smá til að koma og knúsa þig dúlla.

Skólinn gengur auðvitað bara svona eins og vanalega. Gengur ágætlega í stjórnun en kannn bara ekki rass í GARS, og fyrir þá sem ekki vita hvað GARS er, sleppið því bara líf ykkar á bara eftir að flækjast til muna ef þið setjið ykkur eitthvað inn í það. Veit hreinlega ekki hvernig í ósköpunum ég á að fara að því að ná þessu lokaprófi. En jæja það verður þá bara að hafa það ef ég næ ekki. Gefst samt ekkert upp sko:)

Búið að vera frekar mikið að gera í okt þar sem að ég er búinn að vera með tvö hótel þennan mánuðinn samtals næstum því 300 herbergi. Airwaves og annað svona skemmtilegt þannig litlu mér er sko aldeilis ekki búið að leiðast.


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Klukkan
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 412 dögum
Koma jólin
Dagatal
febrúar - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28
FyrriNæsti
Heimsóknir
Í dag:  9  Alls: 10196
RSS tengill